Bókhaldið í góðum höndum.

Data ehf. er bókhalds- og ráðgjafarfyrirtæki sem leggur áherslu á persónulega þjónustu, nákvæmni og traust.

Við leggjum áherslu á að kynnast rekstri hvers fyrirtækis og vinna náið með eigendum þess. Markmiðið er að bókhaldið sé ekki bara eitthvað sem þarf að klára – heldur traustur grunnur fyrir reksturinn og þær ákvarðanir sem þarf að taka.

Fólkið á bak við Data ehf.

Hrönn Þorsteinsdóttir - Viðurkenndur bókari · yfir 20 ára reynsla

Hrönn er viðurkenndur bókari frá Háskólanum í Reykjavík og hefur starfað við bókhald, fjármál og rekstur í yfir 20 ár. Hún starfaði hjá Sagafilm á árunum 2006–2022, fyrst sem aðalbókari og síðar sem fjármálastjóri. Frá 2022 til maí 2026 starfaði hún sem fjármálastjóri hjá Glassriver ehf.

Á starfsferlinum hefur Hrönn unnið meðal annars við árs- og mánaðaruppgjör, ársreikninga, launavinnslu, VSK- og skattaskil, afstemmingar, sjóðsstýringu, rekstrargreiningu og fjárhagsáætlanir.

Reynslan skiptir máli – en það gerir traust og gott samstarf líka.

 

Rakel Reynisdóttir - Bókari · nýútskrifuð og að hefja sín fyrstu skref

 Rakel er nýútskrifuð sem bókari og er að hefja sinn starfsferil á sviði bókhalds.

Hjá Data ehf. fær hún tækifæri til að byggja upp reynslu, vinna með fjölbreytt verkefni og þróast áfram í faginu. Hún leggur áherslu á nákvæm vinnubrögð, skipulag og að veita viðskiptavinum góða og persónulega þjónustu.

Við teljum mikils virði að sameina áratuga reynslu og nýja sýn og skapa þannig gott teymi þar sem þekking, fagmennska og persónuleg þjónusta fara saman.

 

Persónuleg þjónusta · Nákvæmni · Traust