Hrönn Þorsteinsdóttir

Stofnandi, viðkenndur bókari

Hrönn er viðurkenndur bókari frá Háskólanum í Reykjavík og hefur yfir 20 ára reynslu af bókhaldi, fjármálum og rekstri. Hún starfaði hjá Sagafilm frá 2006 til 2022, fyrst sem aðalbókari og síðar sem fjármálastjóri. Frá 2022 til maí 2026 var hún fjármálastjóri hjá Glassriver ehf.

Hjá Data ehf. nýtir hún reynslu sína til að veita fyrirtækjum góða yfirsýn, skýr svör og persónulega þjónustu. Hún veit að gott samstarf byggist ekki síður á trausti en þekkingu.

Rakel Rún Reynisdóttir

Bókari

Rakel er nýútskrifaður bókari og að stíga sín fyrstu skref í faginu. Hjá Data ehf. vinnur hún að fjölbreyttum verkefnum og byggir upp reynslu. Hún leggur áherslu á nákvæmni, gott skipulag og persónulega þjónustu.

Hjá Data ehf. fara áratuga reynsla og ný sýn saman. Þannig byggjum við upp teymi sem vinnur af fagmennsku og leggur sig fram um að veita hverjum viðskiptavini góða þjónustu.